26 iðkendur útskrifast úr akademíum
akademiur_24_ibvsp
Ljósmynd/ibvsport.is

ÍBV Íþróttafélag hefur starfrækt afreksakademíu í samstarfi við FÍV frá því í ársbyrjun 2011 og íþróttaakademíu í samstarfi við GRV frá því ársbyrjun 2012.

Laugardaginn 25. maí útskrifuðust 2 iðkendur úr afreksakademíunni, Andrés Marel Sigurðsson og Kristján Ingi Kjartansson. Þeir stunduðu akademíuna í 4 annir þar sem þeir sóttu 2 tækniæfingar á viku auk bóklegs tíma. Þetta kemur fram í frétt á vef ÍBV-íþróttafélags.

Á þriðjudaginn var útskrift úr GRV akademíunni þar sem 24 iðkendur útskrifuðust. Iðkendur stunda akademíuna í 9. og 10. bekk, þau fá tvær styrktaræfingar á viku ásamt bóklegum tíma eða sundi ásamt því fá þau tækniæfingar í fjórum 3 vikna lotum.

Þau sem luku íþróttaakemíunni: Agnes Lilja Styrmisdóttir, Alanys Alvarez Medina, Anton Frans Sigurðsson, Aron Daði Pétursson, Auðunn Snær G. Thorarensen, Ágústa Hugadóttir Andersen, Ástþór Hafdísarson, Birna Dögg Egilsdóttir, Elísabet Rut Sigurjónsdóttir, Gabríel Þór Harðarson, Guðmundur Huginn Guðmundsson, Heiðmar Þór Magnússon, Hreggviður Jens Magnússon, Ingi Gunnar Gylfason, Ingi Þór Lúðvíksson, Kári Snær Hlynsson, Klara Káradóttir, Kristján Ægir Eyþórsson, Magdalena Jónasdóttir, Morgan Goði Garner, Sigurður Valur Sigursveinsson, Sæþór Ingi Sæmundsson, Tinna Mjöll Frostadóttir og Tómas Arnar Gíslason.

Við óskum iðkendum innilega til hamingju með áfangann og vonumst til að sjá þau áfram í starfi félagsins, segir í fréttinni.

fiv_akad
Kristján Ingi Kjartansson og Andrés Marel Sigurðsson. Ljósmynd/ibvsport.is

https://eyjar.net/utskrift-fiv-vidurkenningar-og-myndir/

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.