Veistu af áhugaverðum þróunar- og nýbreytniverkefnum í GRV, leikskólum, Tónlistarskóla eða Frístundaveri sem þú vilt vekja athugli á?
Hægt er að tilnefna kennara, kennarahópa, leiðbeinendur og starfsfólk í leikskólum, Grunnskóla Vestmannaeyja, Tónlistarskóla og Frístund.
Allir geta tilnefnt til verðlaunanna, s.s. foreldrar, ömmur og afar, nemendur, stofnanir, samtök, starfsfólk Vestmannaeyjabæjar, þ.m.t. starfsfólk í leikskólum, grunnskóla, Tónlistarskóla og Frístund.
Valin verða þrjú verkefni sem fá verðlaun og eru það verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni.
Skila þarf inn ábendingum fyrir 30. apríl 2023
Eyðublað til að skila inn tilnefningu: https://forms.gle/Qwn96h7ME3LsxcLw8





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.