Heimilistónar mæta í Eldheima sjötta maí

Heimilistónar stefna á Eldheima í Vestmannaeyjum sjötta maí nk. Hin stórskemmtilega kvennahljómsveit Heimilistónar er skipuð fjórum af ástsælustu leikkonum þjóðarinnar. Elva Ósk Ólafsdóttir, Vígdís Gunnarsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Ólafía Hrönn eru ekki bara leikkonur heldur líka söngkonur og hljóðfæraleikarar.

Þær slógu í gegn árið 2018 með þátttöku sinni í undankeppni Eurovision söngvakeppninnar með lagið “Kúst og fæjó”. Það verður tekið ásamt öðrum slögurum sem sveitin hefur gert að sínum og allir þekkja. Og efni tengt Vestmannaeyjum. Einnig má búast við leynigestum eins og tíðkast á tónleikum sveitarinnar.

Húsið opnar kl: 20:00 og tónleikar hefjast kl: 21:00.

Miðasala og borðapantanir í Eldheimum – Sími: 4882700 og miðaverð: 3900 kr.

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.