Kjarasamningur við BHM undirritaður
Frá undirritun samningsins þann 15. maí sl

Þann 15. maí s.l. skrifaði samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga undir kjarasamninga við átta aðildarfélög innan BHM.
Félögin eru: Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félagsráðgjafafélag Íslands, Fræðagarður, Iðjuþjálfafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga og Þroskaþjálfafélag Íslands.
Verði kjarasamningar samþykktir munu þeir gilda frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.
Samninganefnd sambandsins vill koma á framfæri þökkum til samninganefnda félaganna fyrir fagleg og lausnamiðuð vinnubrögð við kjarasamningagerðina.
Nú fer í hönd kynning á og atkvæðagreiðsla um kjarasamninga meðal félagsmanna félaganna átta. Niðurstaða atkvæðagreiðslu um samningana mun liggja fyrir þann 19. maí n.k.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.