Minningargrein: Jóhannes Wirkner Guðmundsson
6. júní, 2023
xr:d:DAEmRd78-MI:141,j:2326501770122434746,t:23060608
xr:d:DAEmRd78-MI:141,j:2326501770122434746,t:23060608

Jóhannes Wirkner Guðmundsson
F.28.10.1958
D.27.05.2023

Jóhannes Wirkner Guðmundsson fæddist í Keflavík 28. október 1958. Hann lést 27. maí 2023. Foreldrar hans voru Guðmundur Gíslason og Ingibjörg Friðriksdóttir. Eftirlifandi eiginkona Jóhannesar er Ásta Katrín Ólafsdóttir fædd í Vestmannaeyjum 25. desember 1958. Foreldrar hennar voru Ólafur Oddgeirsson og Ragna Lísa (Góa) Eyvindsdóttir. Börn Jóhannesar og Ástu Katrínar eru. 1) Rósa Konný maki Einar Páll og eiga þau tvær dætur. 2) Daníel Örn Wirkner maki Rakel Dögg Wirkner , börn Daníels eru 2 dætur og 1 sonur, börn Rakelar eru 2 synir og 1 dóttir og á hún 1 son.

Útförinhefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.

Árið 1974 eins og svo mörg árin á undan kom mikið af aðkomufólki á vetrarvertíð í Eyjum, duglegt ungt fólk sem var að sækjast eftir mikillri vinnu í bland við ævintýraþrá og skemmtun. Þetta fólk dreifðist á verbúðirnar  í Fiskiðjunni, Ísfélaginu og Vinnslustöðinni, eftir því í hvaða stöð það var við vinnu og sumir fóru á sjóinn. Á þessum árum voru gerðir út í Eyjum á bilinu 60-70 bátar á vetrarvertíð og á tíðum barst svo mikill afli á land að stundum var unnið nánast allan sólarhringinn en oftast var unnið til kl.22:00 á kvöldin og byrjað snemma. Fólkið kynntist, skemmtileg verbúðarstemmning skapaðist og svo voru Logaböllinn frægu í Höllinni sér kapituli út af fyrir sig þar sem mörg pörin kynntust og bundust til eilífðar.

Jonni var einn af þessum drengjum sem leitaði ævintýra í Eyjum, kom ungur frá Reykjavík og fékk vinnu á vélunum í Fiskiðjunni og dvaldi þar á verbúðinni. Jonni skapaði sér snemma orð fyrir að vera ósérhlífinn, úrræðagóður, duglegur og skemmtilegur í viðmóti og alltaf hress. Vertíðina mína í Fiskiðjunni,  þar sem ég vann í tækjunum, kynntist ég honum þó svo að ég eyjapeyinn byggi upp í bæ í foreldrahúsum, þá voru tíðar ferðirnar á verbúðina en þar bjuggu einnig sameiginlegir vinir, Jói Ólafs, Hebbi Þorleifs og bræðurnir Jón og Gísli Ægissynir. Á vetrarvertíð, á Logaballi í Samkomuhúsinu kynnist Jonni svo henni Ástu Kötu sinni og bundust þau til eilífðar.

Nú er vinur minn dáinn en hann lést aðfaranótt laugardagsins 27. maí s.l. úr krabbameini eftir erfiða en snarpa baráttu.

Ég er svo þakklátur fyrir alla þá góðu vináttu og trúnað okkar á milli, öll þessi ár. Ég þakka þér elsku vinur fyrir leiðsögnina og kennsluna í lundaveiðinni í fyrstu ferðinni minni og okkar saman út í Bjarnarey, sumarið 1985, eftirminnileg ævintýraferð sem byrjaði út í Klettsvík vegna mikillrar þoku, ferð sem við höfum svo oft rætt um og kom okkur alltaf til að hlægja. Já, margt gerist í þokunni. Takk fyrir allar hinar ferðirnar sem við fórum saman í Bjarnarey, mörg sumrin þar á eftir, þetta voru endalaust ævintýri. Takk fyrir yndislegu minninguna okkar af því þegar hakk/pottrétturinn þinn varð til út í eyju í einni af mörgum okkar ferðum saman, við vorum sammála um  að rauðvínssósan hefði verið sú besta og við vorum líka sammála um það að við hefðum aldrei áður fundið á okkur af sósusmakki. Takk fyrir tímann sem við vorum saman í lögreglunni í Vestmannaeyjum, hann varð bara allt of stuttur. Takk fyrir alla leiðsögnina, í fyrstu verkefnunum sem snéru að löggæslunni, í fyrstu sjúkraflutningunum, í tollgæslunni og skýrslugerðinni, þú kunnir þetta allt saman og varst ólatur að miðla af reynslu þinni til okkar nýliðanna. Ekki má gleyma umferðarstjórnunarnámskeiðinu sem fór fram á gatnamótum Heiðarvegar og Kirkjuvegar, þar ætlaðir þú svo sannarlega að kenna okkur nýliðunum rétta taktinn í umferðarstjórnun í einu hádeginu. Á þessum tíma var ekkert sérstaklega mikil bílaeign í Eyjum, ekkert í líkindum við það sem er dag og því var frekar fátt um fína drætti og því varð minna úr kennslunni en ætlunin var. Mikið höfum við hlegið af þessu saman.

Takk Jonni minn fyrir heimboðin og heimsóknirnar, matarboðin okkar og allar mataruppskriftirnar, en hugsa ég til eplaýsunnar í karrýinu sem við matreiddum saman á þessum tíma og þótti ægilega gott, þú kallaðir þessa uppskrift „Pétursýsa“ Takk fyrir sumarbústaðaferðirnar okkar, þær hefðu mátt vera langtum fleiri, takk fyrir skemmtilegu Grímseyjarferðirnar okkar og ekki má gleyma tuðruferðinni frá Eyjum og alla leið til Færeyja, sumarið 2009, ferð sem aldrei gleymist  og við höfum oft rifjað upp saman og töluðum um að við færum kannski í aftur, fyrr en síðar og þá á mun stærri bátum en áður. Takk fyrir allar heimsóknirnar til Eyja og skemmtilegu gistinæturnar þínar hjá okkur Bubbu eftir að þið Ásta Kata fluttuð til Reykjavíkur og þegar Rainbow- og heilsukoddaævintýrin stóðu sem hæst hjá þér og þú varst hér í söluferð.

Ég er viss um að enginn, já enginn hefur selt annað eins magn af Rainbow ryksugum og heilsukoddum hér í Eyjum og á landinu öllu en eins og þú gerðir. Ef einhver var góður sölumaður, þá varst það þú minn kæri, það komst enginn með tærnar þar sem þú hafði hælana í þeim málum. Ég man svo vel eftir 20 feta gámunum, fullum af heilsukoddum sem stóðu á bílastæðinu fyrir utan blokkina sem þið bjugguð í á þessum tíma. Enginn hefði fengið leyfi til að teppa 2-3 bílastæði fyrir svona gáma og það fyrir framan fjölbýlishús í Reykjavík nema þú, minn kæri.

Að lokum elsku Jonni minn þá þakka ég þér fyrir öll símtölin okkar síðustu mánuðina, við áttum gott spjall saman í hverri einustu viku og oftast varst það þú sem huggaðir og herti mann upp þegar mestu veikindin þín gengu yfir.

Kæri vinur, við hittumst síðar í Sumarlandinu og þá höldum við áfram að rifja upp sögur úr minningarbankanum okkar og hlægjum saman og gerum eitthvað skemmtilegt eins og í gamla daga.

Elsku Ásta Kata, elsku Konný mín og elsku Danni minn og fjölskyldur, við Bubba sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð um að hugga ykkur og styrkja.

Þinn vinur,
Pétur Steingríms.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
PXL 20251104 095848596
9. nóvember 2025
17:00
Bókakynning í Eldheimum - Óli Gränz
Skemmtun
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.