Páll forseti bæjarstjórnar – Réttar ákvarðanir og rökréttar
6. febrúar, 2023

Beindust að því eina marki að fá fólkið heim – Teknar undir þrýstingi

 „Þegar ég horfi tilbaka rétta hálfa öld og velti fyrir mér öllu því sem hér gerðist – þegar ég var hér 18 ára peyi – staldra ég oft við þær ákvarðanir sem hér voru teknar af þeim sem réðu fyrir málum hér í bænum. Og höfum í huga að allar meiriháttar ákvarðanir voru einmitt teknar hér í bænum – en ekki á vettvangi ríkisins eins og líklegast yrði raunin nú. Þó geri ég ekki gert lítið úr þýðingu þess að ríkisvaldið bar gæfu til að styðja þær ákvarðanir sem hér voru teknar og standa við bakið á heimamönnum og þeirra vilja,“ sagði Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar í Eldheimum.

„En þegar maður horfir á þessar ákvarðanir nú – með þeim skilningi og vitneskju sem hefur safnast upp á þessum 50 árum – rekur mann fyrst í rogastans yfir því hvað þær voru réttar og rökréttar. Hvað þær hafa þolað vel rýni tímans og reynslunnar – þótt ýmsum hafi þótt þær fífldjarfar og jafnvel fáránlegar þegar þær voru teknar – oftast undir ómanneskjulegum þrýstingi yfirvofandi lífsháska og eyðileggingar.

Enda er það kannski einmitt við þær aðstæður sem maðurinn virkjar til fullnustu allt það sem getur þegar í harðbakkann slær.

Og þegar maður grandskoðar þessar ákvarðanir allar, smáar og stórar, birtist strax ákveðið mynstur; ákveðinn lína í gegnum allt þetta ferli sem aldrei var kvikað frá – meðvitað eða ómeðvitað.“

„Eftir að búið var að tryggja líf og limi bæjarbúa – flytja fleiri en 5000 manns til lands á nokkrum klukkutímum – miðuðu ALLAR ákvarðanir – frá þeim stærstu til þeirra smæstu – aðeins að einu marki: að allt þetta fólk myndi snúa til baka og endurreisa þennan bæ.

Og þá er ég ekki bara að tala um stóru ákvarðanirnar – eins og þá allra stærstu – og að margra mati þá allra fáránlegustu – að legga allt þetta fé og fyrirhöfn og forgang í að kæla hraunkantinn til að bjarga höfninni. Það tókst og það bjargaði líklega bænum.

En þetta voru líka litlar ákvarðanir sem létu ekki mikið yfir sér í fyrstu. Bankar sem áttu veð í atvinnutækjum og tryggingafélög vildu fljótlega fara að taka niður og flytja burtu þessi atvinnutæki til að tryggja hagsmuni sína. Að þessi verðmæti lentu ekki öll undir hrauni. Þetta vildu bæjaryfirvöld auðvitað ekki; þetta ynni gegn hinu altumlykjandi markmiði um að fá fólkið heim aftur. En nú voru góð ráð dýr – menn gátu auðvitað farið með eigur sínar þangað sem þeir vildu.

En bæjaryfirvöld áttu þó krók á móti bragði – þau höfðu síðasta orðið um nýtingu á öllum flutningatækjum, vinnuvélum og mannafla í bænum. Og um daginn var mér sýnd frétt sem Edda Andrésdóttir skrifaði í Vísi vorið 1973 – og fyrirsögnin var bein tilvitnun í karl heitinn föður minn – bæjarstjórann – og þar stóð: „Það verður engum hjálpað við að taka niður atvinnutæki“. Og þar með voru þau ekki tekin niður – hvað svo sem bankar og tryggingafélög vildu.

Dæmið sem mér finnst þó einna athyglisverðast, og lýsir ótrúlegri framsýni, hárnákvæmu stöðumati og jafnvel sálfræðikunnáttu, þekki ég svolítið af eigin raun; þótt ég hafi reyndar ekki skilið það fyrr en löngu seinna.

Þegar ég kom hingað heim til hreinsunarstarfa eftir skóla um vorið var ég settur á traktorsgröfu og var stóran hluta sumars að moka vikri upp úr kirkjugarðinum – var í því að grafa upp dána fólkið eins og einhver sagði. Ég var ekki mikið að velta því fyrir mér þá – en af hverju skyldu stórvirkar gröfur og fullt af fólki hafa verið sett í að hreinsa kirkjugarðinn þegar enn átti eftir að hreinsa frá mörgum íbúðarhúsum og öðrum mannvirkjum? Hverslags forgangsröðun var það? Eftir á að hyggja liggur skýringin í augum uppi: að sjá leiði ættingja sinna, vina – forfeðra og mæðra – rísa úr svörtum vikrinum á bak við sáluhliðið fræga  sem við gengum í gegnum hér áðan – Ég lifi og þér munuð lifa – átti auðvitað að minna fólk á upprunann – ræturnar – verða partur af þeim kór sem kallaði fólk heim!

Enn og aftur: allar ákvarðanir beindust að þessu eina marki – fólkið heim!

Það má svo fylgja hér sem aukasaga að einn daginn kom pabbi að gröfunni hjá mér í kirkjugarðinum – ég hafði þá ekki hitt hann í tæplega hálft ár – og sagði: ‘’Gott að þú ert kominn að hreinsa Palli. Þú verður að standa þig vel!’’ – og kvaddi.

Næst hitti ég hann uppi á flugvelli þremur mánuðum seinna. Þá spurði hann: ‘’Ertu að fara Palli? Ég frétti að þú hefðir staðið þig ágætlega’’.  Og kvaddi. Það var svo um jólin sem ég hitti hann næst. Enda var hann sífellt upptekinn við að skrökva því að fólki að hér væri allt orðið grænt – eins og kom fram hjá núverandi bæjarstjóra okkar hér áðan!

Við stöndum sem sagt í ríkri þakkarskuld við allt það fólk sem tók allar þessar réttu ákvarðanir – sem björguðu bænum okkar. Hvikaði aldrei frá því lokamarkmiði að fá fólkið heim!

Margt af þessu fólki hefur kvatt okkur og sumir áttu ekki heimangengt hér í kvöld. En hér með okkur er einn sem sannarlega tilheyrði þessum hópi. Mig langar, Páll minn Zophoníasson, að biðja þig að stíga hérna fram fyrir hönd ykkar allra og þiggja lítið lófaklapp í þakklætisskyni. Klöppum fyrir fólkinu sem var svo ráðagott í gosinu!

Ég vil svo ljúka þessu með orðum sem Egill Helgason vinur minn lét falla í gær um gosið og viðbrögð landsmanna við því. Þau eru þessi:

‘’Ég hef áður sagt að þar hafi íslenska lýðveldið átt sína glæstustu stund sem einkennndist af samheldni, samhug og samúð’’.

Silja Elsabet og Helga Bryndís ætla að ljúka þessari dagskrá með uppáhaldslaginu mínu…takk fyrir mig!“ sagði Páll að endingu.

Mynd: Forseti Íslands ávarpar bæjarstjórn og Páll forseti bæjarstjórnar fylgist með.

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
DSC 2106
8. júní 2025
13:00
Golfdagurinn í Eyjum
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju í Landakirkju
8. júní 2025
17:00
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju
Landakirkja
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.