Í tilkynningu frá Landsneti og HS Veitum er varað við mögulegum rafmagnstruflunum á milli klukkan 10:00 og 15:00 á morgun, sunnudaginn 16. júlí.
„Undanfarna viku hefur undirbúningur fyrir viðgerð á Vestmannaeyjastreng 3 staðið yfir á sjó og á Landeyjasandi. Á morgun verður vinna í gangi í Vestmannaeyjum sem mögulega gæti leitt til rafmagnstruflana. Næstu daga mun elsti strengurinn til Eyja og varaflsvélar sjá Vestmannaeyjum fyrir rafmagni þar til viðgerð á Vestmannaeyjastreng 3 lýkur. Nánari upplýsingar um viðgerðina er að finna á www.landsnet.is.”
„Hvetjum við til þess að farið verði sparlega með rafmagn á meðan á þessu stendur og minnum á að ef til truflana kemur munum við birta upplýsingar á bæði heimasíðu og samfélagsmiðlum Landsnets og HS Veitna” segir í tilkynningunni.
Landsnet og HS Veitur þakka fyrir skilninginn og þolinmæðina.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.