Golfklúbbur Vestmannaeyja í samstarf með Flugfélagi Íslands
Faxamótið verður endurvakið þann 19. maí nk. og verður Flugfélagið aðalstyrktaraðili mótsins. Samningurinn inniheldur einnig fleiri atriði sem nýtast báðum aðilum og auka notkun á golfvelli GV í Herjólfsdal og stuðla að fjölgun farþega á flugleiðinni milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja.