Axel Ó hættir eftir 64 ár

Nú stendur yfir rýmingarsala hjá Axel Ó við Bárustíg sem hættir rekstri eftir 64 ár í Vestmannaeyjum. Núverandi eigendur, Bára Magnúsdóttir og Magnús Steindórsson, hafa rekið verslunina frá árinu 2000. Axel Ó er elsta skóbúð landsins.

Í tilkynningu í gær senda þau viðskiptavinum og starfsfólki góðar kveðjur. Þau efna til alvöru útsölu og segja gjafabréf og innleggsnótur í fullu gildi. Sportbær á Selfossi og sportbaer.is sem þau reka starfa áfram og er ókeypis heimsending til Vestmannaeyja.

Litla Skvísubúðin mun flytja sig yfir í húsnæðið frá Skólavegi. „Við erum mjög spenntar að flytja á besta stað í bænum. Allt mun þetta gerast í rólegheitunum og taka sinn tíma en við ætlum að gera verslunina aðlaðandi og að okkar. Við náum kannski aldrei að fylla í það skarð sem kemur þegar Axel Ó lokar en við munum gera okkar besta við að veita góða þjónustu með fjölbreyttu vöruúrvali” segir Sigrún Alda Ómarsdóttir, eigandi Litlu Skvísubúðarinnar.

Búðin verður með sama sniði og áður og heldur sínum vörumerkjum en mun bæta við sig einu og öðru. Stefnan sé að bæta við skóm, íþróttafatnaði og einnig við úrvalið af nærfötum.

En hvað með trúðinn?

Eyjafréttir kíktu á rýmingarsöluna í Axel Ó og spurðu hvað skyldi nú verða um Trúðinn, en Bára sagðist einmitt marga hafa haft áhyggjur af honum í dag. Sáluhjálparatriðið sem Trúðurinn er hefur verið hluti af jólunum í Eyjum frá árinu 1965 þar sem hann hefur sýnt listir sínar í glugganum. Sigrún lofar því að hann verði á sínum stað í desember.

Magnús Steindórsson og Bára Magnúsdóttir.
Það var nóg um að vera á útsölunni í dag og fullt út að dyrum.

Nýjustu fréttir

Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.