Lokahóf 3. flokks í knattspyrnu

Á þriðjudagskvöld fór fram lokahóf 3. flokka karla og kvenna í fótbolta en síðustu leikir kláruðust um helgina. Flokkarnir tóku þátt í Íslandsmóti og bikarkeppni.

KSÍ gerði breytingar á Íslandsmótinu í 3. flokk fyrir tímabilið í fyrra og lengdist það í báða enda, en mótið hófst um miðjan mars og lauk nú í lok september. Mótinu var skipt upp í 3 lotur, þar sem liðin gátu unnið sig upp um riðil, fallið niður um riðil eða staðið í stað. Bæði liðin fóru upp og niður á milli riðla, en stelpurnar enduðu sumarið í B-riðli og strákarnir í C-riðli.

ÍBV þakkar iðkendum fyrir skemmtilegt fótboltasumar!

Þau sem fengu viðurkenningar:

3. flokkur kvenna

Besti leikmaðurinn: Ásdís Halla Hjarðar

Framfarir: Agnes Lilja Styrmisdóttir

ÍBV-ari: Erna Sólveig Davíðsdóttir og Magdalena Jónasdóttir

 

3. flokkur karla

Besti leikmaðurinn: Alexander Örn Friðriksson

Framfarir: Sigurður Valur Sigursveinsson

ÍBV-ari: Heiðmar Þór Magnússon og Kristján Logi Jónsson

 

Nýjustu fréttir

Loðnuráðgjöf hækkuð í 197 þúsund tonn
Önnur sýning á lifandi kvikmyndum í Sagnheimum
Eyjafréttir í nýjum búningi á nýju ári
ÍBV tekur á móti Fram í kvöld
Elliði maður leiksins og Ísland í undanúrslit
Beðið með eftirvæntingu eftir loðnuráðgjöf
KR-ingur á láni til ÍBV
Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.