Punktar og ályktanir frá nýliðnu ársþingi SASS 2023

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) var haldið í Vík í Mýrdalshreppi 26. – 27. október sl. en þetta var 54. þingið. Það var fjölsótt en alls sóttu ríflega 120 fulltrúar þingið og af þeim eru 70 kjörgengir. Á ársþinginu eru aðalfundir SASS, Sorpstöðvar Suðurlands og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands haldnir. Auk almennra aðalfundarstarfa voru fjölmög áhugaverð erindi flutt og góðar umræður voru um ályktanir og hver skyldu vera áhersluverkefni samtakanna á komandi starfsári. Milliþinganefndir hafa verið að störfum á árinu sem fjallað hafa um ýmsa málaflokka sem skipta sunnlenskt samfélag máli og þær skiluð vel útfærðum ályktunum og tillögum að verkefnum. Sem dæmi má nefna að samgönguáætlun SASS fyrir árabilið 2023 – 2033 hefur verið uppfærð.

Á þinginu var könnun gerð og þetta eru þær ályktanir sem skoruðu hæst.

Samgöngunefnd

Áfram þarf að forgangsraða vegaframkvæmdum á Suðurlandi í þágu öryggis vegfarenda. Mikill umferðarþungi er í umdæminu, ekki síst vegna mikillar fjölgunar ferðamanna, bæði á þjóðvegi 1 sem og í uppsveitum Árnessýslu.

Víða þarf að breikka vegi og laga vegaxlir. Á þetta við um þjóðveg 1 frá Markarfljóti austur í Skaftafellssýslur en einnig marga stofnvegi í uppsveitum. Gera þarf rifflur í vegmiðjur og koma fyrir vegriðum fyrir þar sem bratt er niður af vegum.

Einbreiðar brýr í Suðurkjördæmi á þjóðvegi 1 eru 17 talsins. Fagnaðarefni er að í samgönguáætlun er áætlað að þær hverfi allar nema ein sem er yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi. Nefndin hvetur til þess að ráðist verði í tvöföldun brúarinnar hið fyrsta samhliða tilfærslu vegarins vegna landrofs.

Setja þarf útskot, afreinar og aðreinar á hættulega staði þar sem umferðarþungi og hröð umferð mæta heimreiðum og tengivegum. Þá þarf að huga að hjólreiðafólki og gangandi umferð.

Mikilvægt er að ráðast í heildarendurskoðun á vetrarþjónustu og tryggja að þá daga sem vetrarfærð er sé snjór hreinsaður og vegir og gangstígar hálkuvarðir.

Efla þarf löggæslu og viðbragð sjúkraflutninga. Sýnileg löggæsla og öflugt umferðareftirlit heldur niðri umferðarhraða og eykur öryggi vegfarenda. Þá er mikilvægt að stytta viðbragðstíma lögreglu og sjúkraflutninga þar sem hann er mestur. Að því marki ber að fullkanna möguleikann á sérhæfðri sjúkraþyrlu á Suðurlandi.

Sunnlendingar eiga að vera brautryðjendur í grænum samgöngum á Íslandi líkt og gert var með rafvæðingu Herjólfs. Gera þarf stórátak í að fjölga hleðslustöðvum fyrir rafbíla um allt Suðurland og því þurfa sveitarfélög að vera tilbúin með skipulag fyrir slíkt. Þá þarf að vinna áfram í landtenging hafna.

Mikilvægt er að landsbyggðin hafi greiðan aðgang að skilvirkum, öflugum og hagkvæmum almenningssamgöngum sem tryggja aðgengi að þjónustu í höfuðborginni. Þá er mikilvægt að flugsamgöngur verði tryggðar til framtíðar bæði til Hornafjarðar og Vestmannaeyja.

Alsherjarnefnd

Að tryggja áframhaldandi vegferð sóknaráætlana.

Mennta- og menningarmálanefnd

Ársþing SASS skorar á háskólaráðaherra að tryggja jafnrétti til háskólanáms óháð búsetu með auknu aðgengi að fjarnámi á Suðurlandi og þar með færa Háskóla Íslands inn á 21. öldina.

Ársþing SASS skorar á menntamálaráðherra að tryggja heimavist við Fjölbrautaskóla Suðurlands til að gæta jafnréttis ungmenna til náms óháð búsetu en færri komast að en þurfa við núverandi aðstæður. Óvissan um framtíð heimavistarinnar er óviðunandi.

Ársþing SASS skorar á innviðaráðherra að tryggja að allar akstursleiðir skólabíla séu bundnar slitlagi innan þriggja ára til að tryggja öryggi leik- og grunnskólabarna.

Umhverfis og skipulagsnefnd:

Ríkið að móta stefnu í minka- og refaveiðum og stórauka fjármagn til að halda minkum og refum í skefjum í byggð.

Velferðarnefnd:

Ársþing SASS skorar á ríkið til að auka fjárveitingu í heilbrigðisþjónustu sem og löggæslu í takt við vaxandi íbúafjölda og gríðarlegan vöxt í umferð fólks um svæðið.

Ársþing SASS hvetur heilbrigðisráðherra til þess að hrinda í framkvæmd hið fyrsta áður samþykkt verkefni um rekstur sérhæfðrar sjúkraþyrlu. Brýnt er að slík þyrla verði staðsett á Suðurlandi og sé hluti af starfsemi HSu.

Ársþing SASS skorar á heilbrigðisráðherra að efla og tryggja bráðaviðbragð sjúkraflutninga HSU. Efla þarf bráðaviðbragð þar sem bráðatilfellum fjölgar í takt við íbúa fjölgun, hækkandi lífaldur þjóðarinnar og aukinnar viðveru ferðamanna á svæðinu. Tryggja verður bráðaviðbragð á fjölsóttustu ferðamannastöðum Suðurlands öllum stundum sólarhringsins.

Ársþing SASS skorar á ríkið að skoða alvarlega mannaflaþörf lögreglunnar og hvernig sé hægt að mæta henni með lögreglumenntuðu starfsfólki, sérstaklega þarf að styrkja löggæslu í Skaftafellssýslum og í uppsveitum Árnessýslu og tryggja að á þeim svæðum verði unnt að halda úti stöðugu eftirliti allt árið um kring.

Ársþing SASS skorar á heilbrigðisráðherra að einfalda fyrirkomulag og flýta stafrænni innleiðingu á endurgreiðslu ferðakostnaðar innanlands vegna heilbrigðisþjónustu sem ekki er veitt í heimabyggð.

Atvinnumálanefnd

Ársþing SASS skorar á umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra að jafna flutningsgjald raforku milli þéttbýlis og dreifbýlis. Fjarlægja þarf heimild til sérstakrar dreifbýlisgjaldskráar.

Ársþing SASS skorar á innviðaráðherra að halda áfram uppbyggingu innviða s.s. samgangna og fjarskipta á Suðurlandi. Tryggja þarf stöðugt aðgengi til að halda uppi fólks- og vöruflutningum um Suðurland.

Stöðugleika á atvinnumarkaði.

Fjárhagsnefnd

Ársþing SASS skorar á sveitarfélög og ríki að hefja viðræður um það hvernig tryggja megi nærsamfélögum um allt land eðlilegar tekjur af auðlindanýtingu, tekjur sem muni styrkja byggð, og þannig skapa skilyrði til búsetufrelsis um land allt. Mikilvægt er að sveitarfélög hafi tækifæri til að byggja upp nauðsynlega innviði svo að nýting auðlinda geti orðið samfélagslega sjálfbær.

Mynd: Aðsend

Nýjustu fréttir

Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Íþróttamaður mánaðarins – Helgi Ólafsson
Baldur á leið til Eyja
Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.