Nýjasti Útkallsþátturinn á visir.is, sem er öllum aðgengilegur, verður helgaður Grindvíkingum og Vestmannaeyingum. Annars vegar hetjuleg björgun fyrir utan Grindavík þegar 12 skiprotsmönnum af Gjafari frá Vestmannaeyjum var bjargað á land eftir að báturinn strandaði þar í foráttubrimi.
Einnig verður sagt frá annarri björgun mánuði fyrr – þegar sami bátur flutti 440 manns til Þorlákshafnar þegar eldgosið hófst á Heimaey. Óttar Sveinsson ræðir við Guðjón Rögnvaldsson, vélstjóra á Gjafari og Ragnheiði Einarsdóttur, eiginkonu hans. Í þættinum verða tilfinningaríkir endurfundir þegar Margeir Jónsson, einn björgunarmannanna úr Grindavík, kemur óvænt og heilsar upp á þau hjónin. Þar ná þau að þakka fyrir lífgjöf Guðjóns.
Þátturinn verður frumsýndur á sunnudag en annars eru allir Útkallsþættirnir hér: https://www.visir.is/sjonvarp/s/428/utkall
Gjafar VE á leið til hafnar í Vestmannaeyjum.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst