Í dag undirrituðu ÍBV-íþróttafélag og VSV samning um áframhaldandi samstarf. Samningur þessi gildir út árið 2026. VSV hefur í áraraðir styrkt félagið myndarlega við bakið á ÍBV og á því verður engin breyting.
Það er ÍBV ómetanlegt að eiga jafn sterkan bakhjarl eins og Vinnslustöðina sem er einn máttastólpum atvinnulífsins í Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin leggur ríka áherlsu á að hér í Vestmannaeyjum sé blómlegt íþróttastarf og vill sitt af mörkum leggja til þess að það sé hægt.
Andrea Atladóttir fjármálastjóri VSV og Ellert Scheving Pálsson framkvæmdastjóri ÍBV skrifuðu undir samninginn í Gullbergi, nýjum líkamsræktarsal félagsins. Það var mikið líf í salnum á meðan, ekki nema 54 á krakkar úr gunnskóla akademíu ÍBV á æfingu.
Frétt af heimasíðu ÍBV.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst