Þingmaður er þjónn fólksins í kjördæminu
11. nóvember, 2018

Starf þingmannsins er ólíkt öllum öðrum störfum sem ég hef áður kynnst. Hann er kosinn til starfa og hans eini yfirmaður er kjósandinn sem á kjördag veitti honum umboð sitt. Enginn annar en kjósandinn getur sagt þingmanninum upp störfum. 

Þingmaðurinn er ekki ríkisstarfsmaður, hann er fulltrúi þeirra kjósenda sem gáfu honum atkvæði sitt á kjördag og þarf að standa þeim skil á vinnu sinni fram að næsta kjördegi.

Þegar kjósendur í Suðurkjördæmi veittu mér brautargengi í kosningunum vorið 2013 tók ég strax þá ákvörðun að verða sýnilegur þingmaður, þjónn fólksins. Leggja mig fram um að kynnast sem flestum í víðfeðmu og fjölmennu kjördæmi og setja mig inn í þau mál sem brenna á samfélögum frá Garðskaga í vestri að Þvottárskriðum í austri. Þetta kostar mikla vinnu og ferðalög.

Tek þátt í gleði og sorg

Ég hef notið þingmennskunnar, þótt ekki hafi alltaf verið logn. Álagið á stundum mikið en alltaf er skemmtilegt að setja sig í stellingar og ferðast um kjördæmið þvert og endilangt. Þingmaður sem ekki kynnist kjósendum sínum og ræktar sambandið við þá, sinnir ekki starfi sínu og verður aldrei trúverðugur fulltrúi þeirra á þingi. Þessi einföldu sannindi voru mér efst í huga fyrir sex árum þegar ég settist fyrst á alþingi. Eftir sex ár á ég vini um allt kjördæmið, fólk sem ég heimsæki reglulega og það skýtur yfir mig skjólshúsi og leyfir mér að gista hjá sér á ferðum mínum austur í sveitir og á Höfn. Ég er heppinn, hef verið beðinn að aðstoða við fjölmörg mál sem snerta einstaklinga og fyrirtæki í kjördæminu. Þá legg ég lið á skemmti- og góðgerðarkvöldum og ég mæti sem ræðumaður eða gestur á fjölda skemmtana. Þannig tek ég þátt í gleði og sorg samfélagsins og mæti gjarnan í útfarir og heimsæki fólk á spítala og dvalarheimili.

Í góðu sambandi við fólkið

Allt kostar þetta mikinn akstur og fjarveru af heimilinu. Að jafnaði eru 100 þingdagar á ári svo það eru eftir 265 dagar sem ég sem þingmaður hef til að rækta fólkið í mínu kjördæmi. Ég lít á það sem skyldu mína að nýta þessa daga til að eiga beint samtal við kjósendur og kjósendur eiga kröfu á að ég sinni þessari skyldu minni af trúmennsku.

Til að sækja þingfundi ek ég u.þ.b. 12.000 km á ári og u.þ.b. 30-35.000 km til að ferðast í kjördæminu á hverju ári. Ég fer um og yfir 100 ferðir um kjördæmið og er hver ferð að meðaltali 300 km. Gera má ráð fyrir að þessar ferðir sem flestar eru farnar um helgar og á kvöldin. Um allflestar þessara ferða má lesa á fésbókinn minni. Þar eru myndir af þeim sem ég hitti og oft stutt frásögn af því sem ég upplifði. Segi frá starfsemi fyrirtækja eða mannlífi á förnum vegi. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir hjá fólki í mínu kjördæmi og langt út fyrir það.

Er í fullu starfi

Árin sex í þingmennsku hafa því verið viðburðarrík og skemmtileg. Um hver mánaðarmót frá maí 2013 hef ég í 68 skipti skilað inn aksturbókinni og geri enn. Ég hef aldrei fengið athugasemdir. Skrifstofa þingsins hefur heldur ekki talið ástæðu til að óska eftir frekari útskýringum.

Það væri áhugavert ef Píratar gætu gefið okkur mynd af sínum störfum í þágu kjósenda sinna og hvernig þeir hafa ráðstafað þeim 265 dögum sem þinghald stendur ekki yfir á hverju ári.

Hvað sem því líður mun ég áfram heimsækja fólkið í mínu kjördæmi, vakna snemma og mæta í morgunkaffi með Suðurvíkurfjósadrengjunum í Norður Vík í Vík í Mýrdal þegar þeir kalla eða ganga frá Keflavík á fund í Grindavík. Ég mun halda áfram að þjónusta kjósendur mína í Suðurkjördæmi sem í enda dagsins munu leggja dóm á mín störf.

 

Ásmundur Friðriksson alþingismaður.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.