Samykkt var í bæjarráði Árborgar á fundi í gær að skipa fimm manna ritnefnd vegna útgáfu afmælisrits vegna 10 ára afmælis Sveitarfélagsins Árborgar á árinu. Nefndin móti tillögu að formi og innihaldi afmælisritsins og leggi fyrir bæjarráð. Lagt var til að Inga Lára Baldvinsdóttir á Eyrabakka verði formaður ritnefndar.