Körfuknattleikslið ÍBV tók í dag á móti Mostra í B-riðli 2. deildar en Mostri, sem er frá Stykkishólmi, var í efsta sæti fyrir leikinn, tveimur stigum á undan ÍBV. Eyjamenn voru hins vegar mun sterkari aðilinn í leiknum, náðu þægilegu forskoti í 2. leikhluta þegar liðið lék stífa pressuvörn sem skilaði liðinu auðveldum hraðaupphlaupskörfum sem lagði grunninn að sigri ÍBV. Lokatölur urðu 76:64,