Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið vegna hinna ýmsu mála sem rötuðu inn á hennar borð. Tvö eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið. Í öðru tilvikinu var um að ræða skemmdir á hópbifreið sem lagt var vestan við verslunina Tvistinn. Um er að ræða rispur á annarri hlið bifreiðarinnar og er talið að skemmdarverkið hafi verið framið um eða í kringum áramótin.