Bjórverksmiðja að rísa út í Brandi.

Jæja þá er nú að styttast að maður fari að koma sér á sjó, við erum að vinna í trollunum og eigum svo eftir að taka nótina um borð, svo er nú líka verið að setja nýtt astik í skipið og verið að dúlla svona í hinu og þessu, ættli við förum ekki á sjó svona laugardag eða sunnudag.

En ég fór með bílinn í dag að láta setja vetrardekkin undir, sem er nú engin stórfrétt, nema hvað að þar fór Magnús nokkur Bragason að bauna á mig, vegna síðustu bloggfærslu, að Helliseyjingar hefðu ekkert að sækja út í Brand, (þá guðdómlegu eyju) þessu er ég nú hreint ekki sammála þar sem þeir hafa nú það mikið gaman af bjórdrykkju þarna úti að þeir hentu háfunum sínum og fleiru bara í sjóinn til þess að hafa meira pláss fyrir bjór, en nú er þetta ekki lengur nauðsynlegt hjá þeim því í gegnum göngin geta þeir fengið sendann nóg af dýrindis Volcano Brandur Bjór, því nú er verið að reisa 8000 tonna Bjórverksmiðju sem á að opna um miðjan mars, framkvæmdin er vel á áættlun og ef veðrið verður þeim hliðholt mun þessi dagsettning standast, þá ættu Helliseyja menn að fá nóg af sínum mjöð þar sem þeir verða með spes afslátt, (magnafslátt)

Gunnlaugur Erlendsson bloggar á http://gunnuep.blog.is

 

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.