Menningarráð Suðurlands, verkefnastyrkir til menningarstarfs á Suðurlandi

Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Suðurlandi og menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis um menningarmál

Veita á styrki til menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á Suðurlandi. Ein úthlutun verður árið 2007, í byrjun nóvember.

Umsóknarfrestur er til og með 26. október. Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í byrjun nóvember.

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki til margvíslegra menningarverkefna en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag.

Menningarráðið mun ekki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- eða endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðumeyðublöð sem hægt er að nálgast hér. Þar er einnig að finna stefnu sveitarfélaga á Suðurlandi í menningarmálum og úthlutunarreglur.

Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands hjá SASS, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is

Umsóknir skal senda, í tölvupósti og í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss eða á menning@sudurland.is.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.