LANDSMÓT hestamanna verður haldið við Hellu dagana 30. júní – 6. júlí. Landsmótið í ár er hið 18. í röðinni en saga Landsmótanna nær aftur til 1950 þegar fyrsta landsmótið var haldið á Þingvöllum.
Í fréttatilkynningu segir að á landsmótinu í ár komi 1.000–1.200 af glæsilegustu hrossum landsins fram og eru keppendur yfir 500 manns á öllum aldri.