Ályktun kvenna í Frjálslynda flokknum vegna Margrétar Sverrisdóttur
16. október, 2007

Stjórn Landsambands kvenna í Frjálslynda flokknum, harmar að sundrung skyldi verða í Frjálslynda flokknum s.l. vetur þegar Margrét Sverrisdóttir og nokkrir stuðningsmenn hennar kusu að segja sig úr Frjálslynda flokknum eftir að hafa tapað í varaformannskjöri fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni.

Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum bendir á að Margrét Sverrisdóttir benti réttilega á hversu óeðlilegt það er að kjörinn fulltrúi stjórnmálaflokks skipti um flokk á miðju kjörtímabili og sitji áfram í þeirri trúnaðarstöðu sem hann var kosinn til upphaflega.

 

Þegar Gunnar Örlygsson sem kosinn var á alþingi fyrir Frjálslynda flokkinn gekk í Sjálfstæðisflokkinn lýsti Margrét Sverrisdóttir því yfir að þetta væri bæði ólöglegt og ósiðlegt að Gunnar skyldi ætla að halda þingsætinu sem með réttu tilheyrði Frjálslynda flokknum. Hún kærði athæfi Gunnars síðan til umboðsmanns Alþingis. Nú er Margrét Sverrisdóttir í sömu stöðu og situr áfram í sæti sem tilheyrir Frjálslynda flokknum í borgarstjórn Reykjavíkur þó hún hafi sagt sig úr flokknum. Það er sama siðleysið og hjá Gunnari Örlygssyni á sínum tíma. Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum lýsir vantrausti á Margréti Sverrisdóttur og öll vinnubrögð hennar þar sem hún gekk úr flokknum en situr samt í umboði hansí borgarstjórn. Margrét var ekki kosin persónukjöri heldur voru það atkvæði flokksins, sem veittu henni setu sem varamanni í nafni Frjálslynda flokksins. Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum skorar á Margréti Sverrisdóttur að fylgja því siðferði sem hún áður boðaði að ætti að gilda í stjórnmálum og segja af sér sem varaborgarfulltrúi þannig að raunverulegur fulltrúi Frjálslynda flokksins setjist í borgarstjórn í stað þeirra sem farnir eru úr flokknum. Borgarstjórnarflokkur Frjálslyndra og óháðra er óviðkomandi Frjálslynda flokknum meðan fulltrúar annarra flokka en Frjálslynda flokksins sitja sem fulltrúar flokksins á fölskum forsendum.

Framkoma Margrétar Sverrisdóttur og tækifærismennska vegna eigin hagsmunagæslu er ekki traustvekjandi fyrir ungar konur sem vilja taka þátt í pólitík og ekki hvetjandi fyrir konur að horfa á vinnubrögð hennar að sitja umboðslaus í borgarstjórn.

Margrét Sverrisdóttir situr ekki fyrir og er á engan hátt tengd Frjálslynda flokknum.

Samþykkt einróma á stjórnarfundi 15. október 2007

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.