Helstu verkefni lögreglu frá 1. til 8. október 2007.

Það var öllu rólegra hjá lögreglu í vikunni sem leið en síðust tvær vikur á undan. Hins vegar hafði lögreglan í ýmsu að snúast að vanda við að aðstoða borgarana og halda uppi lögum og reglu.

Ein eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu um helgina en gestur veitingastaðarins Lundans varð eitthvað ósáttur við að vera vísað út og lét skap sitt bitna á rúðu í veitingastaðnum þannig að hún brotnaði.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í síðustu viku vegna gruns um ölvun við akstur og hafa þá fimm ökumenn verið staðnir að akstri undir áhrifum áfengis á undanförnum þremur vikum sem verður að teljast mikið miðað við stað eins og Vestmanneyjar. 

Fyrra tilvikið átti sér stað að kvöldi 1. október sl. en við eftirlit lögreglu var ökumaður stöðvaður á Friðarhafnarbryggju vegna hraðaksturs.  Þegar lögreglan hafði tal af ökumanninum vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum áfengis við aksturinn og var hann því færður á lögregustöðina í þágu rannsóknar málsins.

Seinna tilvikið átti sér stað undir kvöld þann 5. október sl. en þá var lögreglu tilkynnt um að bifreið hafi lent utanvega á Hamarsvegi, vestan Dverghamars. Þarna hafði ökumaður bifreiðarinnar misst stjórn á akstrinum með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti utan vega og valt a.m.k. eina veltu.  Ökumanninn og farþega sem var í bifreiðinni sakaði ekki en bifreiðin er töluvert skemmd. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis við aksturinn.

Í sl. viku var sami ökumaður stöðvaður í tvígang fyrir akstur án réttinda á bifhjóli auk þess sem hjólið var óskráð og ótryggt. Í öðru tilvikinu hafði ökumaðurinn sett skráningarmerki af léttu bifhjóli á bifhjólið sem hann var stöðvaður á.  Þá var annar ökumaður stöðvaður á léttu bifhjóli og hafði sá ekki réttindi til að aka hjólinu auk þess sem hjólið var óskráð og ótryggt.  Báðir þessir ökumenn eru 15 ára.  

 

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.