Elfar Guðni Þórðarson, myndlistarmaður sýnir myndir sínar í hinu nýja og glæsilega anddyri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.
Elfar hefur haldið fjölmargar sýningar, m.a. í Keflavík, Reykjavík, Hveragerði, Selfossi og Eyrarbakka en flestar sýningar hans hafa verið á Stokkseyri þar sem hann er fæddur og uppalinn.