Sárast að missa uppáhaldshænuna

Þeim Gíslínu Magnúsdóttur og Gísla Óskarssyni, frístundabændum í Vestmannaeyjum, var illa brugðið þegar þau fóru að athuga með búfénað sinn á fimmtudagskvöld. Hundur hafði komist í hænurnar þeirra og drepið fimm. „Þetta var ekki skemmtileg aðkoma og sorglegt að sjá þær liggja þarna eins og hráviði út um allt,” segir Gíslína. Fyrst rákust þau hjónin á tvær dauðar hænur í hlöðunni. Sú þriðja lá í valnum í fjárhúsinu og tvær voru utandyra.

„Það var fiður út um allt og þegar við skoðuðum hænurnar sáum við að þær höfðu verið bitnar svo það er líklegast að þarna hafi verið hundur á ferðinni,” segir Gíslína sem saknar mest hænunnar Bellu sem var hænd að mannfólkinu. Auk hænsnanna fimm sem drápust eru þrír ungar horfnir.

Hænurnar þeirra Gíslínu og Gísla fá að ganga frjálsar um utandyra en hafa kofa til að kúra í á nóttunni. Gíslína segir að svona nokkuð hafi aldrei komið fyrir áður. „Það er mikið um hunda hér í Eyjum en flestir hafa þá í bandi,” segir hún.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.