Gunnar Heiðar til Svíþjóðar?

Sænskir fjölmiðlar fullyrtu í gær að íslenski landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson væri undir smásjá Sigurðar Jónssonar þjálfara og félaga hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Djurgården

Á fimmtudag lét aðstoðarþjálfari liðsins, Paul Lindholm, hafa eftir sér að Djurgården vantaði vissulega öflugan markaskorara, en hann vildi þó ekkert gefa upp um það hvort sá markaskorari væri Gunnar Heiðar.

Christian Hochstetter, stjórnarformaður Hannover, segist ekkert hafa heyrt frá forsvarsmönnum Djurgården. “Við höfum fundið fyrir áhuga frá Svíþjóð og við erum nú að íhuga framtíð hans [Gunnars Heiðars] hjá félaginu. En við höfum ekkert heyrt frá Djurgården,” sagði Hochstetter.

Gunnar Heiðar var ekki í leikmannahópi Hannover þegar liðið vann Karlsruhe í gærkvöld, en hann varð markakóngur í sænsku úrvalsdeildinni árið 2005, með sextán mörk, þegar hann lék þar með liði Halmdstad. Hann yrði því væntanlega góður liðsauki fyrir Djurgården í toppbaráttu sænsku deildarinnar.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.