Landeyjahöfn í Bakkafjöru í undirbúningi

Undirbúningur að gerð hafnar í Bakkafjöru í Austur-Landeyjum stendur nú yfir og eru ýmis atriði skipulags- og umhverfismála nú til meðferðar hjá þar til bærum yfirvöldum. Gert er ráð fyrir að ný ferjuleið milli Vestmannaeyja og lands verði komin á síðla árs 2010. Landeyjahöfn verður skammt sunnan og austan flugvallarins á Bakka og rétt vestan við ósa Markarfljóts. Gert er ráð fyrir að leggja nýjan veg milli hafnarinnar og Hringvegarins og er nú tillaga uppi um að hann liggi meðfram Markarfljóti. Þá er hafin umfangsmikil landgræðsla í sandinum ofan og austan við væntanlegt hafnarstæði. Tilgangur hennar er að hefta sandfok á svæðinu og hefur þegar verið sáð í um 50 hektara.

Fulltrúar stýrihóps um Bakkafjöruhöfn, aðstoðarmaður samgönguráðherra, skrifstofustjóri í samgönguráðuneyti, fulltrúar Landgræðslunnar og sveitarstjóri Rangárþings eystra skoðuðu uppgræðsluverkefnið í fjörunni í gær.

Fyrsta skref uppgræðslunnar er að koma fyrir svonefndum fokgirðingum sem snúið er þvert á vindátt. Safnast að þeim sandskaflar og við það hækkar landið upp fyrir vetrarvatnsborð sem er yfirleitt hærra en vatnsborðið að sumarlagi. Þegar landið hefur hækkað með þessum aðgerðum er unnt að sá í svæðið og verður það gert í vor. Auk sáningar eru heyrúllur notaðar til að hefta rennsli vatns og í framhaldi af því verður sáð þar melgresi og grastegundum. Gert er ráð fyrir að sá í um 100 hektara svæði og alls þarf að safna um 1.200 heyrúllur til verkefnisins í nærliggjandi sveitum.

Til að uppgræðslan nái sem bestri fótfestu er nauðsynlegt að reisa um tveggja kílómetra langan varnargarð vestan við neðsta hluta Markarfljóts og annan styttri nokkru ofar með fljótinu. Stefnt er að því að reisa varnargarðinn um leið og nýr vegur verður lagður. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri segir fljótið flengjast bæði til austurs og vesturs við ósana og því sér brýnt að hemja landbrot þess til vesturs til að uppgræðslan beri árangur.

Stefnt er að því að bjóða megi út gerð Bakkafjöruhafnar fljótlega á næsta ári. Valdir hafa verið fjórir aðilar sem heimilað verður að bjóða í rekstur nýs Herjólfs en unnið er nú að þarfagreiningu vegna útboðs. Stefnt er að því að útboðið fari fram fyrir áramót.

Full frétt ásamt myndum frá Bakkafjöru á vef Samgönguráðaneytis:
http://www.samgonguraduneyti.is/frettir/nr/1383

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.