Á sunnudagskvöldið stóð Þekkingarsetur Vestmannaeyja fyrir opnu málþingi um ástand lunda og sandsílastofnanna við Vestmannaeyjar. Þar kom m.a. fram að þrjá árganga vantar orðið í lundastofninn í Vestmannaeyjum vegna lélegrar nýliðunar árin 2005, 2006 og 2007. Lagt er til að vegna þessa verði veiði mjög takmörkuð í ár og jafnvel að algjört veðibann verði sett á. Þetta eru aðeins tillögur og þó ekki hafi allir fundarmenn verið sáttir við þessar hugmyndir er greinilegt að lundakarlar taka niðurstöður vísindamanna mjög alvarlega og eru tilbúnir að fara í samstarf um aðgerðir til varnar lundanum.