Árlegu netaralli, sem hófst 2. apríl, fer senn að ljúka. Aðeins er eftir að ljúka sýnatöku á svæðinu fyrir norðaustan land en gert er ráð fyrir að það klárist um helgina. Sjö bátar hafa tekið þátt í netarallinu. Arnar SH var í Breiðafirði, Saxhamar SH í Faxaflóa, Friðrik Sigurðsson ÁR á svæðinu frá Reykjanesi að Þrídröngum, Glófaxi VE frá Þrídröngum að Skeiðarárdjúpi og Hvanney SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum. Sædís ÍS var í Ísafjarðardjúpi og Þorleifur EA á svæðinu frá Húnaflóa að Þistilfirði.