Tap á rekstri Vinnslustöðvarinnar var 1153 milljónir króna á fyrsta fjórðungi ársins en á sama tímabili á síðasta ári var 765 milljóna króna hagnaður á rekstrinum. Segir félagið að skýringa þessara breytinga er fyrst og fremst að leita í fjármagnsliðum félagsins. Heildartekjur félagsins voru 1623 milljónir króna en 1750 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Tekjur lækkuðu bæði í útgerð og fiskvinnslu. Rekstrargjöld hækkuðu um 94 milljónir króna eða úr 1159 milljónum króna í fyrra í 1253 milljónir króna nú.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.