Í dag klukkan 14.00 mæta Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Portsmouth, 1. deildarliðinu Cardiff í úrslitum ensku bikarkeppninnar. Leikurinn fer fram á Wembley en hópur Eyjamanna fóru á leikinn. Í heildina er samankominn um 50 manna hópur til að styðja Eyjamanninn á vellinum en um helmingur þeirra kemur frá Vestmannaeyjum.