Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji Vålerenga og íslenska landsliðsins, verður í eldlínunni í kvöld þegar varalið Vålerenga spilar gegn Levanger í norsku 2. deildinni. Hann mun síðan væntanlega vera í byrjunarliði Íslands sem tekur á móti Wales á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn. Framtíð Gunnars Heiðars hjá Vålerenga er óráðinn því lánssamningur hans við félagið rennur út í lok næsta mánaðar og virðist vera takmarkaður áhugi fyrir því að fá hann alfarið til félagsins frá þýska úrvalsdeildarliðinu Hannover 96 ef marka má norska fjölmiðla.