Hátíðarhöldin yfir sjómannadagshelgina halda áfram en klukkan 13.00 í dag verður Sjómannafjör í Friðarhöfn. Klukkutíma síðar hefst skákmót í Friðarhöfn þar sem landkrabbar mæta sjómönnum. Veðrið í Vestmannaeyjum er mjög gott, sól og blíða og því ætti enginn að láta sig vanta við bryggjukantinn á eftir.