Strákarnir í 2. flokk Selfoss tóku á móti sameiginlegu liði Grindavík og Njarðvík í kvöld á Selfossvelli. Þetta var fyrsti leikur hjá ný ráðnum þjálfara 2. flokks Selfoss, Kristjáni Óla Sigurðssyni.
Strákarnir sýndu úr hverju þeir eru gerðir og unnu leikinn 4-0.
Mörk Selfoss skoruðu þeir Viðar Örn Kjartansson 3 en hann spilaði bara fyrri hálfleik og svo skoraði Reynir Björgvinsson 1 mark.