Nína Björk Geirsdóttir, GKj er með eins höggs forystu eftir þriðja keppnisdag í Íslandsmótinu í golfi. Helena Árnadóttir, GR, er í öðru sæti en Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og Tinna Jóhannsdóttir, GK eru jafnar í þriðja og fjórða sæti, þremur höggum á eftir Nínu Björk. Í karlaflokki hefur Heiðar Davíð Bragason, GR tekið forystu, hefur leikið hringina þrjá á 209 höggum og er sex höggum undir pari. Annar er Íslandsmeistarinn Björgvin Sigurbergsson, GK, fimm höggum á eftir Heiðari og þriðji er Ottó Sigurðsson, GR, sem er sex höggum á eftir Heiðari.