Eyjastelpan Margrét Lára Viðarsdóttir hefur farið fyrir íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu undanfarin ár en liðið tryggði sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins í Finnlandi á næsta ári, með því að leggja Íra að velli 3:0. Margrét var jafnframt langmarkahæsti leikmaður undankeppninnar, skoraði alls tólf mörk en næstu leikmenn á eftir henni voru með átta. Vaktin heyrði í Margréti í vikunni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst