Í síðustu viku var pólskur maður, búsettur í Vestmannaeyjum, dæmdur fyrir alvarlega líkamsárás á samlanda sinn og átti atvikið sér stað í Eyjum um miðjan dag. Maðurinn hlaut skilorðsbundinn fangelsisdóm, var gert að greiða skaðabætur og að greiða allan sakarkostnað. Það var lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum sem ákærði í málinu, en árásin átti sér stað í september sl. skömmu eftir hádegið framan við Toppinn við Heiðarveg.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst