Í kvöld, klukkan 20:30 keppir Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum í spurningakeppni Framhaldsskólanna á RÚV, Gettu betur. Fyrstu umferðirnar fara fram á Rás 2 en síðan tekur við keppni í sjónvarpi. FÍV hefur ekki riðið feitum hesti frá keppninni, aðeins einu sinni komist í sjónvarpshluta keppninnar en lið FÍV í ár ætlar að snúa þeirri hefð við. FÍV etur kappi við nýjasta framhaldsskóla landsins, Framhaldsskólann í Mosfellsbæ sem jafnframt er að keppa í fyrsta sinn í Gettu betur.