Vestmannaeyjaferjan Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjarhafnar, að mati Ívars Gunnlaugssonar skipstjóra, þar sem höfnin er orðin of grunn vegna framburðar á sandi og gosefnum, sem berst inn í höfnina. Í síðustu ferð í gær, kenndi skipið grunns bæði á innleið og útleið og dró heldur úr ferð þess í annað skiptið.