Ögmundur Jónasson, samgönguráðherra og sveitarstjórnarráðherra, lagði fram tillögu í ríkisstjórn á mánudaginn um að fjárveitingar verði auknar til að hægt verði að halda Landeyjahöfn opinni í vetur. Samkvæmt upplýsingum í ráðuneytinu var málið ekki klárað á fundinum en það mun þó ekki tefja fyrir aðgerðum í Landeyjahöfn. Eru Siglingastofnun og Vegagerðin að leita að öflugra dæluskipi.