Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir í kvöld söngleikinn Mamma mia. Verkið er vel þekkt enda hefur það gengið fyrir fullu húsi í London í áratugi og bíómynd eftir söngleiknum sló í gegn fyrir nokkrum árum. Söngleikurinn er byggður í kringum hin geysivinsælu lög ABBA. Leikstjóri uppsetningar Leikfélags Vestmannaeyja er Eyjamönnum að góðu kunnur en Guðjón Þorsteinn Pálmarsson setti upp leikritið Bláa hnöttinn hjá félaginu fyrir nokkrum árum.