Í gær léku kvennalið ÍBV og Fylkir í knattspyrnu æfingaleik í Egilshöllinni í Reykjavík. Mörkin urðu hvorki fleiri né færri en ellefu talsins en að lokum voru það Fylkisstúlkur sem höfðu betur 6:5 í hreint mögnuðum markaleik. Staðan í hálfleik var 3:2 fyrir Fylki en í stöðunni 5:5 bjargaði markvörður Fylkisstúlkna meistaralega í tvígang áður en þær brunuðu í skyndisókn og skoruðu sigurmarkið.