Körfuknattleikslið ÍBV tapaði fyrir ÍA í átta liða úrslitum í gær. Liðin áttust við á Akranesi en aðeins er leikin ein umferð í úrslitakeppni 2. deildar. Eyjamenn klúðruðu heimaleikjaréttinum í síðasta heimaleik vetrarins gegn Reyni Sandgerði á dögunum þegar þeir töpuðu í leik sem þeir áttu að vinna. Fyrir vikið þurftu Eyjamenn að fara upp á Skaga í 8 liða úrslitum og töpuðu þar 103:79.