Í gærkvöldi fór fram úrslitakvöld Músíktilrauna en Eyjasveitin SÚR var meðal þeirra sveita sem vann sér rétt til að taka þátt í úrslitunum. Músíktilraunir fara þannig fram að um 40 sveitir koma fram í undanúrslitum dagana 25.-28. mars síðastliðinn og eru 12 sveitir valdar þaðan og inn í úrslitin. SÚR gerði sér lítið fyrir og endaði í öðru sæti keppninnar, sem er hreint frábær árangur.