Keppnin Ungfrú Suðurland fer fram á Hótel Selfossi á föstudagskvöld en fjórar Eyjastúlkur taka þátt í keppninni. Alls eru keppendur níu talsins og verða fjölmörg verðlaun veitt eftir keppnina. Meðal annars er sérstök netkosning á gangi nú á Sunnlenska.is þar sem hægt er að velja Netstúlku keppninnar.