Eyjastelpan Dröfn Haraldsdóttir, sem hefur leikið undanfarið með HK, hefur verið valin í æfingahóp íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Dröfn hefur leikið afar vel í vetur og er vel að því komin að vera valin í landsliðshópinn. Guðbjörg Guðmannsdóttir, leikmaður ÍBV gaf hins vegar ekki kost á sér að þessu sinni en Guðbjörg hefur verið lykilmaður hjá ÍBV í vetur og ætti vel heima í hópnum.