„Ég var mjög ósáttur við fyrri hálfleikinn, eins og reyndar örugglega allir þeir sem voru að horfa á leikinn. Við vorum bara drullulélegir og eiginlega enginn sem stóð upp úr í fyrri hálfleik. Við skömmuðumst okkar í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var allt annar, miklu betri fótboltalega og við pressuðum á þá. Framarar sköpuðu sér í raun voða lítið á móti okkur þrátt fyrir vindinn,“ sagði Heimir Hallgrímsson í samtali við Eyjafréttir eftir sigurinn á Fram í kvöld.