Á dögunum fékk Slökkvilið Vestmannaeyja sína eigin laug. Ekki þannig að meðlimir liðsins geti dýft sér ofan í til yndisauka, heldur laug sem notuð er sem vatnsforðabúr á vettvangi. Þannig væri t.d. hægt að tæma tankbíl liðsins á staðnum, í laugina og tankbíllinn gæti svo sótt meira vatn á meðan notast væri við vatnið úr lauginni. Laugin tekur alls 10 þúsund lítra og tekur aðeins nokkrar mínútur að fylla hana.