Síðdegis í gær, sunnudaginn 27. nóvember, var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt um að tveir ungir drengir væru að príla í jólatrénu á Stakkagerðistúninu. Kveikt var á trénu síðastliðinn föstudag en talið er að drengirnir hafi ætlað að losa perur úr seríunni. Það tókst þeim þó ekki þar sem vökull vegfarandi stóð þá að verki. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að neðan.