Birkir Ívar Guðmundsson átti góðan leik þegar Haukar lögðu Val að velli í 8- liða úrslitum Eimskipsbikarnum í gær. Birkir Ívar lék einnig með Haukum, sem lögðu ÍBV að velli í 16 liða úrslitum. Hann á sér óskamótherja í undanúrslitum, B-lið ÍBV. B-liðið mætir einmitt úrvalsdeildarliði HK á föstudagskvöld en þessi tvö lið mættust einmitt í 16-liða úrslitum í fyrra og þá höfðu Haukar betur. Það skyldi þó aldrei vera að Birki verði að ósk sinni.