Það var í nógu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið, eins og fram kemur hér að neðan. Skemmtanahald helgarinnar fór að mestu ágætlega fram en þó var nokkuð um stympingar við og á skemmtistöðum. Einungis ein kæra liggur fyrir vegna líkamsárásar. Þá var nokkuð kvartað yfir hávaða í heimahúsum vegna gleðskapar.